Ályktun hverfisráðs Háaleitis og Bústaðahverfis

Á síðasta fundi Hverfisráðs Háaleitis og Bústaðahverfis sem haldinn var þann 17.mars s.l. var eftirfarandi ályktun samþykkt af hverfisráðinu 

“ Vegna fyrirhugaðrar lokunar vinstri beygju af Bústaðavegi norður Reykjanesbraut, lýsir hverfisráð Háaleitis áhyggjum af auknu umferðaflæði inn í íbúðarhverfi norðan Bústaðavegs. Hverfisráð leggur áherslu á að gripið verði til mótvægisaðgerða við Réttarholtsveg áður en að lokuninni kemur. Nauðsynlegt er að afla nýrri upplýsinga um umferðaþunga á gatnamótunum og við þær götur þar sem búast má við auknu umferðaflæði, s.s. um Réttarholtsveg, Sogaveg, Grensásveg og Tunguveg. Til samanburðar verði svo mælingar endurteknar eftir lokun vinstribeygju ef af lokuninni verður og áhrifin af framkvæmdinni metnar. Ákvarðanir verði svo teknar um framhaldið á grundvelli þess mats.”

 


Opinn kynningarfundur fyrir íbúa í Bleikargróf, Blesugróf, Jöldugróf og Stjörnugróf

 

Opinn kynningarfundur 18. mars kl. 17:15 

fyrir íbúa í Bleikargróf, Blesugróf, Jöldugróf og Stjörnugróf

 Hverfisráð Háaleitis boðar til opins kynningarfundar þriðjudaginn 18. mars nk. í samvinnu við Skipulags- og byggingarsvið, Framkvæmdarsvið og Velferðarsvið Reykjavíkurborgar um fyrirhugaðan rekstur dagdeildar fyrir Alzheimer sjúklinga í Blesugróf. Fundurinn verður haldinn í Fossvogsskóla og hefst kl. 17:15 

 


Kynntu þér Sundabraut

Sundabrautin er málefni sem skiptir alla Reykvíkinga miklu máli. Umræðan hefur verið í gangi um langt skeið og ýmsar hugmyndir um legu brautarinnar hafa komið upp.

Ný síða hefur verið sett upp á http://sundabraut.is/. Kynnið ykkur málið.

 


Ályktun Íbúafundar 28.02.2008

Ályktun íbúafundar Bústaðahverfis Opinn fundur íbúasamtaka Bústaðahverfis telur að samhliða umdeildri lokun beygju af Bústaðavegi til norðurs inn á Reykjanesbraut, verði að leggja í verulegar mótvægisaðgerðir við Réttarholtsveg. Ljóst er að með slíkum lokunum eykst umferð um Réttarholtsveg um a.m.k. 10%. Erfitt er að sjá að vegurinn þoli aukið álag bílaumferðar eins og staðan er í dag.  Á svæðinu við Réttarholtsveg eru leikskólar, tveir grunnskólar og félagsstarf eldri borgara. Skilyrði fyrir lokun beygju af Bústaðarvegi, er að áður verði lokið við mótvægisaðgerðir við Réttarholtsveg.  

Ályktun um mislæg gatnamót Bústaðarvegar og Reykjanesbrautar 6.12.2007

Stjórn Íbúasamtaka Bústaðahverfis ályktar eftirfarandi vegna umræðu um mislæg gatnamót á mótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar. 

Stjórn íbúasamtaka Bústaðahverfis leggst alfarið gegn framkomnum hugmyndum um byggingu mislægra gatnamóta við Bústaðaveg.

 

Slík framkvæmd mun hafa í för með sér mikla aukningu umferðar um Bústaðaveg sem mun kljúfa hverfið endanlega í sundur að óbreyttu ástandi.

 

Óviðunandi er að auka umferðarþunga í íbúðarhverfi með slíkum hætti. Það eykur m.a. slysahættu við Bústaða -og Réttarholtsveg í tengslum við skólasókn unglinga í Réttarholtsskóla og rýrir enn frekar möguleika barna ofan Bústaðavegar að sækja íþróttaæfingar hjá Víkingi, sem er íþróttafélag hverfisins. Auk þess sem það skerðir önnur lífsgæði íbúa hverfisins.

 

Þessi framkvæmd mun þannig rýra búsetuskilyrði í hverfinu, sem er óásættanlegt að mati stjórnar íbúasamtakanna.

  

Reykjavík 6.12.2007

 

Stjórn íbúasamtaka Bústaðahverfis


Lög íbúasamtaka Bústaðahverfis

LÖG ÍBÚASAMTAKA BÚSTAÐAHVERFIS-BETRA LÍF Í BÚSTAÐARHVERFI

1.      grein
Félagið heitir Íbúasamtök Bústaðahverfis, Betra líf í Bústaðahverfi 
Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík. Félagssvæði er Bústaðahverfi og afmarkast af Miklubraut í norðri, Reykjanesbraut í austri, Fossvogsdal í suðri sunnan Bústaðavegar að Kringlumýrarbraut og Grensásvegi í vestri 

2.      greinTilgangur félagsins er:a.  Að vera samstarfsvettvangur íbúa og félagasamtaka á félagssvæðinub.  Að vinna að framfara- og hagsmunamálum í Bústaðarhverfic.  Að stuðla að samhug innan svæðisins. d.      Að byggja upp samstarf við opinberar stofnanir sem hafa með málefni hverfisins að gera.e.      Byggja upp samstarf við önnur íbúasamtök.f.        Að hvetja íbúa til hugmynda og athafna fyrir hverfið. 

3. grein
Allir íbúar B
ústaðahverfis sem þar eiga lögheimili, teljast félagar.  Kjörgengi hafa allir lögskráðir íbúar svæðisins 18 ára og eldri.
 

4.  grein
Stjórn íbúasamtaka Bústaðahverfis skal skipuð 5 stjórnarmönnum; formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og  meðstjórnenda. Stjórn skiptir með sér verkum. 
 

5.  grein 
Aðalfund skal halda árlega,  á tímabilinu frá 1. september til 1. desember. Skal hann boðaður með a.m.k. viku fyrirvara með sannanlegum hætti, ásamt því að vera auglýstur á heimasíðu samtakanna og telst fundarboðunin þá lögleg.


6.  grein
Dagskrá aðalfundar.
 ·         Skýrsla stjórnar um störf á liðnu ári skal lögð fram.·         Endurskoðaðir reikningar fyrir liðið ár skulu lagðir fram til úrskurðar. ·         Tillögur að lagabreytingum skulu teknar fyrir. Tillögur um lagabreytingar þurfa að hafa borist stjórninni eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund og skal stjórn kynna þær í fundarboði aðalfundar.  Samþykki 2/3 fundarmanna þarf til að lagabreytingar nái fram að ganga. ·         Kosning stjórnar.  Stjórnarkjör fer fram skv. 4 grein.  Einfaldur meirihluti ræður úrslitum.  Stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára, nema á fyrsta fundi þá skulu tveir stjórnarmenn kosnir til tveggja ára og þrír til þriggja ára.  ·         Skipa skal tvo skoðunarmenn reikninga fyrir næsta ár.·         Önnur mál.

7.      grein
Hvatt er til þess að íbúar hafi frumkvæði og hugmyndir að velferð hverfisins og  stofni nefndir á hverjum tíma eftir því sem þörf krefur.  Nefndir skulu hafa fullt samráð við stjórnina um mál er varða samtökin.   
 

8. grein
Stjórnin skal boða til almenns félagsfundar ef ákveðnar óskir, studdar af amk 20 félagsmönnum koma fram þar að lútandi og skal sá fundur auglýstur og boðaður eins og um aðalfund væri að ræða. Stjórn getur boðað til málfunda um tiltekin málefni.

9. grein
Hætti samtökin störfum renna eignir samtakanna til æskulýðsmála í hverfinu.
 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband