Færsluflokkur: Ályktanir

Ályktun Íbúafundar 28.02.2008

Ályktun íbúafundar Bústaðahverfis Opinn fundur íbúasamtaka Bústaðahverfis telur að samhliða umdeildri lokun beygju af Bústaðavegi til norðurs inn á Reykjanesbraut, verði að leggja í verulegar mótvægisaðgerðir við Réttarholtsveg. Ljóst er að með slíkum lokunum eykst umferð um Réttarholtsveg um a.m.k. 10%. Erfitt er að sjá að vegurinn þoli aukið álag bílaumferðar eins og staðan er í dag.  Á svæðinu við Réttarholtsveg eru leikskólar, tveir grunnskólar og félagsstarf eldri borgara. Skilyrði fyrir lokun beygju af Bústaðarvegi, er að áður verði lokið við mótvægisaðgerðir við Réttarholtsveg.  

Ályktun um mislæg gatnamót Bústaðarvegar og Reykjanesbrautar 6.12.2007

Stjórn Íbúasamtaka Bústaðahverfis ályktar eftirfarandi vegna umræðu um mislæg gatnamót á mótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar. 

Stjórn íbúasamtaka Bústaðahverfis leggst alfarið gegn framkomnum hugmyndum um byggingu mislægra gatnamóta við Bústaðaveg.

 

Slík framkvæmd mun hafa í för með sér mikla aukningu umferðar um Bústaðaveg sem mun kljúfa hverfið endanlega í sundur að óbreyttu ástandi.

 

Óviðunandi er að auka umferðarþunga í íbúðarhverfi með slíkum hætti. Það eykur m.a. slysahættu við Bústaða -og Réttarholtsveg í tengslum við skólasókn unglinga í Réttarholtsskóla og rýrir enn frekar möguleika barna ofan Bústaðavegar að sækja íþróttaæfingar hjá Víkingi, sem er íþróttafélag hverfisins. Auk þess sem það skerðir önnur lífsgæði íbúa hverfisins.

 

Þessi framkvæmd mun þannig rýra búsetuskilyrði í hverfinu, sem er óásættanlegt að mati stjórnar íbúasamtakanna.

  

Reykjavík 6.12.2007

 

Stjórn íbúasamtaka Bústaðahverfis


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband