27.8.2008 | 10:54
30% ökumanna óku of hratt um Tunguveg
Brot 8 ökumanna voru mynduð á Tunguvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Tunguveg í norðurátt, að Langagerði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 27 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega þriðjungur ökumanna, eða 30%, of hratt eða yfir afskiptahraða, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Einn ók á 50 km hraða eða meira en sá mældist á 58.
Af mbl.is þann 27.ágúst 2008
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.