Fundur um Sundabraut

 

Samgönguráðherra efnir n.k. miðvikudagskvöld, þann 7.maí, til opins fundar um Sundabraut. Fundurinn verður haldinn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur og hefst klukkan 20.

 

Tilgangur fundarins er að upplýsa borgarbúa og annað áhugafólk um samgöngur um fyrirhugaða Sundabraut, mögulega útfærslu hennar og kostnað.

Kristján L. Möller samgönguráðherra ávarpar fundinn í upphafi og síðan fjalla sérfræðingar Vegagerðarinnar um Sundabraut.

Þá munu borgarfulltrúarnir Gísli Marteinn Baldursson og Dagur B. Eggertsson einnig ávarpa fundinn.

Að loknum erindum verður gefinn kostur á umræðum.


Bloggfærslur 6. maí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband